Þessar kúlur eru sannkallaðar ofurkúlur en þær innihalda meðal annars chia fræ, haframjöl og möndlusmjör. Möndlusmjörið í þessa uppskrift fékk ég í Bónus frá Himneskt og fagna ég því mjög að geta loksins keypt það í almennum matvöruverslunum enda er ég farin að nota það mikið í bakstur. Það er hinsvegar einfalt að útbúa sitt eigið möndlusmjör fyrir þá sem hafa áhuga á því.
Kúlurnar eru mjúkar og svo ótrúlega bragðgóðar. Þær gefa góða næringu þegar löngunin í eitthvað sætt kemur yfir mann. Einu sinni byrjað og þið getið ekki hætt….ég lofa!
Ofurkúlur með súkkulaði og chia fræjum
120 g möndlusmjör
100 g hunang
30 g kakó
1 tsk vanilludropar
hnífsoddur af sjávarsalti
90 g haframjöl
40 g chia fræ
40 g dökkir súkkulaðidropar (má sleppa)
- Látið möndlusmjör og hunang saman í pott og bræðið saman við lágan hita. Takið af hitanum og hrærið kakódufti, vanilludropum og salti vel saman við.
- Blandið haframjöli og chiafræum saman í skál. Hellið því næst súkkulaðiblöndunni í skálina og blandið þessu vel saman. Kælið örlítið.
- Bætið dökku súkkulaðidropunum saman við á þessu stigi ef þið ætlið að hafa þá og mótið í kúlur.
- Njótið þegar þið viljið og geymi í kæli í loftþéttum umbúðum
Leave a Reply