Hér er á ferðinni smá sælgæti sem er stútfullt af góðri næringu og gefur manni orkuskot þegar að maður þarf sem mest á því að halda. Það er gott að hafa þessar við höndina. YumYum!
Orkunammi
14 stk
100 g tröllahafrar
50 g dökkt súkkulaði, saxað
50 g rúsínur
50 g steinlausar döðlur, saxaðar
25 g möndlur
100 g hunang
30 g sýróp
- Blandið tröllahöfrum, súkkulaði, rúsínum, döðlum og möndlum saman í skál.
- Mýkið hunang og sýróp á pönnu og blandið haframjölsblöndunni saman við og ristið í smá stund. Hrærið vel í blöndunni. Takið pönnuna af hitanum og mótið í 14 múslístykki og látið þau á smjörpappír.
- Bakið við 180°c í 10 mínútur, fylgist vel með og varist að þetta brenni. Kælið á bökunarplötunni.
Leave a Reply