Rice Krispies, hunang, hnetusmjör og súkkulaði er allt sem þar til að gera þessu einföldu en um leið dásamlegu nammibita sem eru stökkir með ljúfri karmelluáferð. Tilbúnir á innan við 30 mínútum fyrir okkur að njóta.
Stökkir nammibitar
170 ml hunang
130 g hnetusmjör
70 g Rice Krispies
250 g Síríus Konsum súkkulaðidropar
- Bræðið hunang og hnetusmjör saman við vægan hita. Takið af hitanum, bætið Rice Krispies út í og blandið þessu vel saman. Hellið síðan blöndunni í form með smjörpappír og pressið niður með skeið.
- Bræðið súkkulaðidropana í vatnsbaði eða í örbylgjuofni og hellið síðan bræddu súkkulaðinu yfir Rice Krispies blönduna. Setjið í frysti í um 20-30 mínútur. Takið út og skerið í bita stærð að eigin vali.
- Geymist í lokuðu íláti í kæli eða frysti í allt að viku.
Leave a Reply