Þegar afmæli er í vændum er það þessi kaka sem er bökuð á mínu heimili. Hún er dásamlega mjúk og bragðgóð og svo einföld að það er leikur einn að skella í hana. Hver veit hvað verður en hingað til hefur engin komin í stað þessarar að mínu mati og hún fær því fullt hús stiga!
Uppáhalds afmæliskakan
200 g smjör, lint
300 g hveiti
400 g sykur
3 egg
35 g kakó
1 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
250 ml vatn
Súkkulaðismjörkrem
180 g smjör, brætt
100 g kakó
800 g flórsykur
160 ml mjólk
2 tsk vanilludropar
1 tsk kaffi (má sleppa)
- Hrærið öll hráefnin fyrir kökuna saman. Skiptið niður á tvö smurð form. Bakið í um 20-25 mínútur við 180°c. Takið úr ofni og leyfið að kólna áður en kremið er sett á.
- Hrærið öll hráefnin fyrir kremið þar til allt hefur blandast vel saman. Ef kremið er of þunn bætið þá flórsykri saman við, einni skeið í einu. Smyrjið kreminu varlega á kökuna með hníf.
- Berið fram og njótið.Ef þið viljið gera köku sem passar í ofnskúffu þurfið þið að tvöfalda uppskriftina af kökunni og baka í um 35 mínútur.
Leave a Reply