Skilmálar GRGS
Skilmálar vefverslunar
Almennt
GRGS.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunnar eiga sér stað.
Afhending vöru
Öllum öðrum pöntunum er dreift af Póstinum. Sendingarkostnaður er reiknaður út frá gjaldskrá Póstsins með tilliti til áfangastaðar og fjölda vara, stærð þeirra og þyngd. Reynt er eftir fremsta megni að afgreiða öll kaup næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vöru frá Póstinum. Skilmálar Póstsins eru aðgengilegir á vefsíðu fyrirtækisins. GRGS.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi Póstsins. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá GRGS og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.
Uppgefinn afhengingartíma verður ávalt reynt að halda nema ef svo ber undir að varan sem keypt er sé ekki til á lager vegna villu hugbúnaði, nær það til en einskorðast ekki við villur í birgðarhaldi, hugbúnaðarvillu, vefþjónavillu, ef svo ber undir þá mun varan vera afhend við fyrsta hentuga tækifæri þó ekki skemur en að 3 virkum dögum
Skilafrestur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Hér má lesa nánari upplýsingar um skilareglur.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan kostnað sem gæti komið upp við sendingu.
Netverð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð í vefverslun gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður er reiknaður útfrá gjaldskrá Póstins með tilliti til áfangastaðar og fjölda vara, stærð þeirra og þyngd. Gjaldskrá Póstsins má nálgast á heimasíðu fyrirtækisins.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Notkun á persónuupplýsingum
Sendingar úr kerfi GRGS kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima klúbbsins. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir klúbbsins geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum.
Varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað.