Áhuginn á fæði sem inniheldur lítið af kolvetnum hefur notið aukinna vinsælda. Ég ákvað því að setja inn nýjan flokk í uppskriftirnar mínar með heitir lágkolvetna fæði. Það ætti því að einfalda fólki á þannig matarræði að finna uppskriftir sem hentar.
Þessi uppskrift fellur einmitt í þennan lágkolvetna flokk. Hún hentar þó jafnframt öllum enda einföld máltíð, holl, ódýr og hreint út sagt frábær á bragðið. Hér fara kjúklingaleggirnir í sparibúning.
Olía, sítróna, sítrónusafi,rósmarín og hvítlaukur
Litríkt og fallegt!
Girnó og gott!
Kjúklingaleggi með sítrónu og rósmarín
1 pakki kjúklingaleggir
1 sítróna, börkur og safi
3-4 msk ólífuolía
3 stilkar ferskt rósmarín, saxað
1 hvítlauksrif, pressað
salt og pipar
Aðferð
- Rífið með fínu rifjárni hýðið af sítrónunni. Látið í skál ásamt ólífuolíunni, söxuðu rósmarín, safa úr sítrónunni og pressuðu hvítlauksrifi. Blandið saman og saltið og piprið.
- Látið kjúklingaleggina í skál eða poka og hellið blöndunni saman við. Nuddið kryddinu vel í kjúklinginn.
- Látið í ofnfast mót og eldið við 200°c hita í um 25-30 mínútur eða þar til þeir eru orðnir gylltir og stökkir.
Leave a Reply