Haldið ykkur fast, nú kynni ég til leiks eina rosalega súkkulaðiköku! Þessa gerði ég fyrir drengina mína sem voru komnir með meira en nóg af hráfæðikökunum hennar mömmu sinnar og báðu um eina svona ekta súkkulaðiköku. Þessi er reyndar svo miklu meira en bara ekta súkkulaðikaka, þetta er súkkulaðibomba! Hvernig getur eitthvað sem inniheldur kókos, karmellu, pekanhnetur og súkkulaði klikkað?
Kókoskarmellubrownie með pekanhnetukurli
150 g suðusúkkulaði
225 g smjör, mjúkt
2 bollar sykur
4 egg
1 bolli hveiti
1 tsk vanilludropar
300 g súkkulaðidropar, deilt niður í uppskriftinni
2 bollar kókosflögur
1 1/2 bolli pekanhnetur, saxaðar
1 dós (376g) sæt niðursoðin mjólk (condenced milk) fæst í Kosti, austurlenskum matvöruverslunum og stundum Hagkaup
Aðferð
- Hitið ofninn á 180°C. Smyrjið og stráið smá hveiti á form 33 x 23 x 5 cm (ég notaði reyndar hringlótt form í þetta sinn).
- Látið súkkulaðið í skál og inn í örbylgjuofn í um 30 sek. þannig að það bráðni þegar hrært er í því.
- Látið smjör og sykur í hrærivél og hrærið á meðalhraða þar til blandan er orðin létt og ljós.
- Bæði eggjum út í einu í einu og hrærið áfram. Bætið súkkulaðinu út í.
- Stillið hrærivélina á lágan kraft og bætið hveiti hægt út í. Hrærið þar til það hefur rétt blandast saman. Bætið þá vanilludropum og 150 g af súkkulaðidropum út í
- Látið deigið í formið og dreifið vel úr því. Stráið kókosi, 150 g af súkkulaðidropum og pekanhnetum yfir deigið. Hellið sætu niðursuðumjólkinni yfir allt saman.
- Látið í ofn og bakið í 50-55 mínútur eða þar til endarnir eru orðnir stökkir og kakan bökuð í miðjunni. Stingið í miðjuna áður en þið takið hana úr ofni og fullvissið ykkur um að hún sé bökuð, en blaut.
- Látið kólna að fullu áður en hún er skorin niður.
Leave a Reply