Kjúklinga enchiladas

Home / Fljótlegt / Kjúklinga enchiladas

Þegar kemur að því að elda mexíkóskan mat vantar oft ansi mikið uppá frumlegheitin á þessum bæ og yfirleitt endar þetta á því að ég steiki kjúkling og grænmeti á pönnu og set í vefju sem er jú voða gott. En í þetta sinn langaði mig að prufa eitthvað alveg nýtt, eitthvað alveg sjúklega gott og endaði á því að gera þessar kjúklinga enchiladas. Sósan er hreint út sagt dásamleg og færir ykkur suðrænt, sumarlegt og seiðandi bragð og rétturinn getur varla verið mikið einfaldari.

2013-03-15 14.49.502013-03-15 15.24.492013-03-15 17.26.202013-03-15 18.15.06Kjúklinga enchiladas
2 kjúklingabringur, eldaðar og rifnar niður
2 skarlottulaukar (eða 1/2 laukur/rauðlaukur) saxað smátt
160 g rifinn ostur
salt og pipar
1/4 bolli steikingarolía
8 vefjur
1 dós (400g) heilir afhýttir tómatar
1/4 kóríander
1 stórt grænt chillí, með eða án fræjum
1-2 hvítlauksrif, pressuð
1 msk rjómi

Aðferð

  1. Hitið ofninn á 190°c.
  2. Blandið saman í skál kjúklingi, lauk og helming af ostinum. Kryddið með salti og pipar.
  3. Hitið olíuna á pönnu og steikið vefjurnar við háan hita í 5 sek á hvorri hlið, mögulega gæti hvarflað að ykkur að sleppa þessu stigi, en trust me..do not! Leggið á bréfþurrku eða viskastykki. Deilið kjúklingablöndunni á allar vefjurnar og rúllið þeim þétt upp. Setjið í ofnfast mót.
  4. Látið í matvinnsluvél tómatana úr dósinni, kóríander, chillí, hvítlauk og rjóma og blandið vel saman. Hversu sterk sósan á að vera fer eftir því hvernig chillíið er. Ég tók helminginn af fræjunum úr svo að allir fjölskyldumeðlimir gætu borðað réttinn, en næst mun ég óhikað henda chillíinu út í án þess að fræhreinsa það, gefur þessu smá spæs en verður aldrei mjög sterkt. Hellið yfir vefjurnar og endið með að strá osti yfir.
  5. Bakið í 20-25 mínútur eða þar til osturinn er orðinn gylltur.
  6. Berið fram með sýrðum rjóma, avacado og tómatsalsa.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.