Púðusykursmarengsinn klassíski kemur hér í sparibúningi með ljúfri og góðri karmellusósu. Saman er þessi blanda ósigrandi!
Púðusykursmarengs með rice krispies og ljúfri karmellusósu
Marengsbotnar
4 eggjahvítur
2 dl púðusykur
1 dl sykur
50 g rice krispies
Ljúf karmellusósa
50 g smjör
1 dl rjómi
1 poki (250 g) rjómakarmellur, ég notaði frá Freyju
1 peli rjómi
ber/ávextir til skreytinga
- Þeytið eggjahvítur, púðusykur og sykur vel og lengi saman eða þar til marengsinn er orðinn stífur og glansandi, bætið þá rice krispies varlega saman við með sleif.
- Teiknið tvo ca. 23 cm hringi á smjörpappír og deilið marengsinum niður á hvorn hringinn. Setjið því næst botnana inn í 150°c heitan ofn og bakið í um 50 mínútur.
- Gerið karmelluna með því að bræða smjörið í potti og bæta síðan rjóma og karmellum saman við og hræra þar til karmellurnar hafa bráðnað. Takið af hellunni og leyfið að kólna.
- Þeytið því næst rjómann og látið á milli botnanna. Hellið karmellukreminu yfir og skreytið með berjum og/eða ávöxtum að vild.
Leave a Reply