Langar þig að vinna tapas-og vínsmökkunarnámskeið á Tapasbarnum fyrir tvo?

Home / Veitingahús / Langar þig að vinna tapas-og vínsmökkunarnámskeið á Tapasbarnum fyrir tvo?

Langar þig á frítt tapas-og vínsmökkunarnámskeið á Tapasbarnum fyrir tvo?
Tapasbarinn ætlar að bjóða 8 heppnum þátttakendum ásamt vini að taka þátt í frábærri spænskri upplifun fimmtudaginn 19. maí frá  kl.16 til 18.

tapas2

Góð þjónusta og notalegt umhverfi á Tapasbarnum

Við munum smakka 10 tegundir af vínum, sérvalin af vínsnillingnum “Tolla” Sigurbjörnssyni, með 13 mismunandi tapasréttum og farið verður yfir galdurinn að para saman vín og mat. Aðaláherslan í tapas- og vínsmökkuninni verður á að hafa gaman….saman.

tapas3

Meðal annars verður boðið upp á hvítlauksbakaða humarhala

Meðal rétta sem verða smakkaðir verða er t.d. ekta spænsk serrano, kolkrabbi, saltfiskur, beikonvafðar hörpuskeljar og döðlur, hvítlauksbakaðir humarhalar, Iberico secreto, lamb í lakkrís og ofl.

tapas4

Þorleifur Sigurbjörnsson íslandsmeistari vínþjóna 2016

Þorleifur Sigurbjörnsson eða “Tolli” er alger reynslubolti og hafsjór af fróðleik um vín. Hann er íslandsmeistari vínþjóna 2016 og var að koma frá Argentínu þar sem hann tók þátt í keppninni um besta vínþjónn heims.

Ef þið langar að eiga skemmtilegt kvöld í vín- og tapassmökkun með góðum vini, ykkur að kostnaðarlausu, hvetjum við ykkur til að kynna ykkur málið á heimasíðu Tapasbarsins: http://tapas.is/is/Um_Tapas/Tapas-_og_vinsmokkun/

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.