Nú ættu aðdáendur beikons að gleðjast því hér kemur uppskrift að virkilega bragðgóðum stir fry kjúklingarétti með stökku beikoni. Rétturinn nær svo fullkomnu jafnvægi með hrísgrjón í meðlæti. Njótið vel.
Stir fry kjúklingaréttur með stökku beikoni
Spicy kjúklingaréttur með stökku beikoni
700 g kjúklingalæri, t.d. frá Rose Poultry (frystivara sem fæst í flestum matvöruverslunum)
1 eggjahvíta
1 msk sterkja (t.d. hveiti)
200 g beikon, skorið í bita
3 cm engifer, skorið þunnt langsum (eins og tannstönglar)
2 paprikur, skornar í bita
1 búnt vorlaukur, skorið í bita
1 msk chilí mauk, t.d. Blue dragon Minched hot chili
2 msk púðusykur
120 ml soyasósa, t.d. Blue dragon Dark Soy sauce (með saltbragð en Light Soy sauce)
- Hrærið saman sterku og eggjahvítu. Skerið kjúklingalærin í bita og veltið þeim upp úr blöndunni. Takið til hliðar og geymið.
- Hrærið soyasósunni, púðusykri og chili mauki saman í skál.
- Steikið beikonbitana á pönnu við háan hita og hrærið reglulega þar til þeir eru orðnir stökkir.
- Steikið kjúklinginn og engiferið upp úr 1-2 msk af beikonfitunni.
- Bætið því næst paprikum og vorlauk og steikið í 2-3 mínútur. Bætið því næst soyasósunni saman við og eldið í um 2 mínútur eða þar til sósan er farin að þekja kjötið og grænmetið.
Berið fram með hrísgrjónum.
Leave a Reply