Hvað get ég sagt annað en – þessa Rice Krispies súkkulaði hafraklatta verðið þið hreinlega að gera. Trylltir!
Er til eitthvað gómsætara???
Rice Krispies súkkulaði hafraklattar
14-16 klattar
Klattar
6 dl haframjöl
200 g smjör, brætt
2 dl sykur
1 1/2 msk vanillusykur
2 msk kakó
3 msk kaffi
1 msk rjómi
Rice Krispies súkkulaði
300 g suðusúkkulaði, skipt niður
3 dl Rice Krispies
300 g suðusúkkulaði, skipt niður
3 dl Rice Krispies
- Setjið haframjöl í matvinnsuvél og vinnið smátt.
- Bætið bræddu smjöri, sykri, vanillusykri, kakó, kaffi og rjóma saman við og blandið vel saman. Setjið í kæli í nokkrar mínútur.
- Mótið þá deiginu í litla klatta.
- Bræðið 100 g af súkkulaðinu og hrærið vel saman við Rice Krispies.
- Bræðið 200 g af súkkulaði í skál og dýfið bollunum í súkkulaðið.
- Setjið strax súkkulaðiðhúðað Rice Krispies yfir bolluna.
Leave a Reply