Ef þið viljið máltíð sem er ódýr, holl en á sama tíma hreint unaðslega góð þá eru þið í toppmálum með þessa uppskrift. Þessa súpu elska allir og hún er ofureinföld í gerð. Naan brauðið með dásemdar fetaosta og ólífufyllingu setur svo punktinn yfir i-ið.
Gulrótasúpa með engifer
Fyrir 4
500 g gulrætur
2 laukar, saxaðir
20 g ferskt engifer, afhýtt og fínrifið
3-4 hvítlauksrif, söxuð
2 msk smjör
1 tsk cumin (ath ekki kúmen)
1 tsk kóríander
salt og pipar
1 lítrar af grænmetissoð, t.d. frá Oscars (eða 1 msk grænmetiskraftur frá Oscars og vatn)
2 msk sítrónusafi
Meðlæti
5 % sýrður rjómi, t.d. frá Mjólka
naan brauð með fetaosti og olívum
- Setjið smjör í pott og steikið gulrætur, lauk, hvítlauk og engifer saman og kryddið.
- Hellið grænmetissoðinu saman við og látið malla í 20 mínútur.
- Blandið í matvinnsluvél eða blandara og bætið sítrónusafa saman við. Saltið og piprið að eigin smekk.
Naan brauð með fetaosta og ólífufyllingu
2 1/2 tsk þurrger
250 ml vatn, fingurvolgt *
1/2 tsk sykur
450 g hveiti
3 msk ólífuolía
1 krukka feti í kryddolíu með ólífum frá Mjólka
- Setjið fingurvolgt vatn í stóra skál. Athugið að hafa það fingurvolgt, ef það er of heitt “deyr” gerið og brauðið lyftir sér ekki.
- Bætið 400 g af hveiti saman við, 2 msk af olíu og salti. Hnoðið saman og bætið við hveiti eftir þörfum. Brauðið á að vera örlítið klístrað en þó þannig að hægt sé að hnoða það án þess að það festist við fingurnar. Hnoðið vel í um 7-10 mínútur og mótið deigið í kúlu.
- Látið deigið skál og setjið 1 msk af olíu yfir og viskustykki yfir skálina. Látið standa á heitum stað í um klukkustund eða þar til deigið hefur tvöfaldast í stærð.
- Hnoðið þá aftur og skiptið niður í litla bita. Fletjið hvern bita út og setjið fetaost, ólífur og smá af olíu á einn helming brauðsins. Leggið hinn helminginn yfir og fletjið út. Passið að brauðið lokist svo fyllingin leki ekki út.
- Penslið brauðin með kryddolíunni, stráið t.d. smá af söxuðum hvítlauk og steinselju yfir brauðin og kryddið með chilíkryddi.
- Grillið þau síðan í ofni eða á útigrilli. Stráið ferskri steinselju yfir brauðið og berið fram með matnum.
Færslan er styrkt.
Leave a Reply