Ég var á Spáni á dögunum, nánar tiltekið á Sitges sem er dásamleg borg. Þar eru fjarlægðirnar litlar, strandirnar fegurri en allt og maturinn hreint út sagt dásamlegur. Sangría sem er þekktur túristadrykkur á Spáni lítur alltaf svo vel út í sól en ég hef aldrei fengið góða Sangríu, fyrr en nú. Hér er hin fullkomna Sangría uppskrift – sem er sumarlegri en allt og smellpassar í góða vinahittinga. Ég lofa ykkar að þessa munu þið elska.
Appelsínur, límónur, romm og gott rauðvín gera þessa Sangríu að þeirri bestu
Sumarleg Sangría
fyrir 6
1 sítróna
1 límóna
1 appelsína
350 ml spiced romm, t.d. Bacardi Oakheart
100 g sykur
750 ml rauðvín, t.d. Campo Viejo Rijoa Tempranillo
240 ml appelsínusafi
- Skerið ávextina í sneiðar og setjið í könnu.
- Setjið sykur og romm saman við. Geymið í kæli í um 2 klst þeas. ef tími vinnst til annars gengur alveg að bera drykkina fram strax og vel það.
- Takið úr kæli og kremjið ávextina lítillega með sleif.
- Hellið rauðvíni og appelsínusafa út í og bætið við sykri ef þarf.
- Setjið klaka út í. Ef ykkur finnst drekkurinn rífa aðeins of vel í þá er hægt að bæta smá Sprite út í.
- Að lokum, blastið Despacito í græjunum og njótið!
Leave a Reply