Undursamlega góðar brownies sem ég vil meina að séu þær allra bestu. Ofureinfaldar í gerð en bráðna í munni. Hægt að bæta við hnetum sé þess óskað en á mínu heimili er vinsælast að hafa þær án þeirra.
Njótið xxxx
Bestu brownies
100 g smjör
2 egg
3 dl sykur
1 ½ dl hveiti
4 msk kakó
1 ½ tsk vanilludropar
hnífsoddur salt
100 g heslihnetur, saxaðar smátt (má sleppa)
- Bræðið smjörið og kælið.
- Þeytið egg og sykur saman þar til blandan er orðin létt og ljós.
- Setjið hveiti, kakó, vanillusykur og salt saman í aðra skál og hellið síðan yfir í eggja og sykurblönduna.
- Hellið smjörin saman við blönduna.
- Smyrjið form eða setjið smjörpappír í það og hellið deiginu í.
- Bakið í 175°c heitum ofni í um 25-30 mínútur. Varist að ofbaka þær ekki því þá verða þær þurrar. Stingið prjóni í deigið og þegar ekkert deig kemur með prjóninum er kakan tilbúin.
Leave a Reply