Marengsterta með maltesers súkkulaðikremi

Home / Kökur & smákökur / Marengsterta með maltesers súkkulaðikremi

Hvort sem um er að ræða köku með kaffinu eða í veisluna að þá standa marengstertur standa ávallt fyrir sínu. Þegar þú sameinar svo marengs með rjóma og malteserssúkkulaði að þá ertu komin með þennan sigurvegara sem vekur lukku hvert sem hún fer.

2013-10-06 10.56.38-2

Marengsterta með maltesers súkkulaðikremi
Marengs
300 g flórsykur
150 g Maltesers
5 stk eggjahvítur

Fylling
2 ½ dl rjómi
150 g Maltesers, saxað

Krem
5 dl rjómi (sumum finnst sósan vera of þunn – mæli þá með því að nota 2.5 dl í staðinn)
300 g Maltesers

Botnar

  1. Stífþeytið eggjahvíturnar og flórsykurinn saman. Blandið saman við smátt skorið Maltesers.
  2. Bakið í tveimur 24 sm formum í 40-45 mínútur við 130°C.

Á milli botna

  1. Þeytið rjómann og blandið söxuðu Maltesers út í. Smyrjið þessu á milli botnanna.

Krem

  1. Látið rjómann ná suðu og takið af hitanum. Bætið Maltesers út í og hrærið vel saman. Hellið yfir kökuna og látið leka niður hliðarnar

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.