Þessi uppskrift er frá Danielle Walker en hún er uppáhalds matarbloggarinn minn. Hún heldur úti síðunni http://againstallgrain.com/ og mæli ég eindregið með bæði blogginu hennar og matreiðslubókunum.
Þessar smákökur þykja öllum góðar. Þær eru frekar seigar undir tönn (chewy) og minna á vissan hátt á hinar sígildu Subway kökur. Þetta hefur lengi verið uppáhalds smákökuuppskriftin á mínu heimili og því bökuð alveg nokkrum sinnum fyrir jólin.
Anna Rut
Bestu glútenlausu smákökurnar
½ bolli smjör eða smjörlíki (113g)
2 egg
½ bolli kókospálmasykur eða hrásykur
4 msk hunang
4 tsk vanilludropar
3 bollar möndlumjöl
4 msk kókoshveiti
1 tsk matarsódi
1 tsk sjávarsalt
200 g suðusúkkulaði (gróf saxað)
- Hitið ofninn í 180°C.
- Setjið smjörið/smjörlíkið og eggin í matvinnsluvél eða hrærivél og vinnið vel saman.
- Bætið út í kókospálmasykrinum, hunanginu og vanilludropunum og hrærið eða blandið í matvinnsluvél.
- Setjið möndlumjölið, kókoshveitið, matarsódann og saltið saman við og hrærið vel.
- Hrærið að lokum brytjaða súkkulaðinu saman við með sleikju.
- Notið tvær skeiðar til að setja deigið í litlar hrúgur á bökunarplötu með smjörpappír.
- Vætið aðeins fingurnar og þrýstið létt ofan á hverja köku og mótið þær aðeins.
- Bakið í um 10 – 12 mínútur eða þangað til kökurnar eru brúnar í köntunum.
Leave a Reply