Hér er á ferðinni vinningsréttur úr matreiðslubókinni GulurRauðurGrænn&salt – Fljótlegir réttir fyrir sælkera en í henni má finna uppskriftir af hollum mat fyrir fólk sem elskar að borða góðan mat en hefur ekki mikinn tíma til að standa lengi í eldhúsinu. Kjúklingarétturinn er einfaldur í gerð og smellpassar í helgarmatinn.
Gratíneraður kjúklingaréttur með beikon, döðlum og hvítlauk
Fyrir 4-5
Eldunartími 30 mínútur
1 heill kjúklingur, eldaður
150 g spínat
100 g beikon, smátt skorið
70 g döðlur, smátt skornar
4 stór hvítlauksrif, pressuð
1 msk oregano þurrkað
3 dl vatn
2 dl matreiðslurjómi
3 msk rjómaostur
1 kjúklingateningur
1/2 grænmetisteningur
Rifinn ostur
- Brúnið beikonið á pönnu.
- Bætið hvítlauknum út á pönnuna og steikið með beikoninu í örskamma stund, setjið þá döðlurnar út í ásamt vatninu, oregano og teningunum. Látið malla saman svolitla stund.
- Setjið spínatið í botninn á eldföstu móti og stráið kjúklingnum þar yfir.
- Bætið matreiðslurjómanum og rjómaosti út á pönnuna og sjóðið niður sósuna í ca. 5 mín. Þegar sósan er tilbúin, hellið þá þessari gúrmei blöndu yfir kjúklinginn og passið að döðlurnar og beikonið dreifist jafn yfir kjúklinginn.
- Setjið því næst rifna ostinn yfir allt saman og bakið í ofni þar til osturinn er orðinn gylltur og fallegur.
Leave a Reply