Mikið sem það er gott að fá þriggja daga helgi. Er bara búin að hafa það dásamlegt og algjörlega búin að endurhlaða batteríin. Fékk tiltektaræði, sem gerist 1 sinni á öld hjá mér og því tók ég því fagnandi. Í gær fylgdist ég með vinkonum mínum næla sér í MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og þvílík gleðistund sem það var. Í dag er svo dúllerí í eldhúsinu, elska það. Uppskriftin af þessum girnilegu Hafra- og kókoskökum sem ekki þarf að baka er einföld og dásamlega bragðgóð og tilvalið að eiga svona kökur í frystinum þegar sætindaþörfin kemur yfir mann. Njótið dagsins kæru vinir.
Hafra- og kókoskökur
80-100 g tröllahafrar, t.d. frá Himneskri Hollustu
80 g kókosflögur, t.d. frá Himneskri Hollustu
160 ml hunang
120 ml kókosolía, fljótandi
120 g möndlusmjör
1 msk hörfræ eða chia
2-3 tsk vanilludropar
6 msk hreint kakó
- Blandið saman höfrum og kókosflögum.
- Bræðið í potti, hunang, kókosolíu og möndlusmjör og hrærið stöðugt þar til blandan hefur bráðnað og blandast vel saman.
- Takið af hitanum og bætið hafra og kókosblöndunni saman við. Bætið því næst hörfræjum, vanilludropum, kakódufti og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Mótið í kökur og setjið í frysti í amk. 20 mínútur.
Leave a Reply