Að þessu sinni er komið að uppskrift sem ætti að vekja mikla lukku hjá lesendum GulurRauðurGrænn&salt. Uppskrift af kanillengju með súkkulaðiglassúr og möndluflögum sem er hættulega góð og þú vilt alls ekki baka nema þú eigir von á gestum.
Fyrir okkur kaffielskendur er gott bakkelsi fullkomnað með góðu kaffi og þá er nauðsynlegt að eiga góða kaffikönnu. Fyrst ég minnist á það vil ég meina að það er löngu komin tími á að ég geri vel við lesendur síðunnar og ætla því í samstarfi við Ormsson að bregða á leik fram til jóla og gleðja lesendur síðunnar með ýmsum flottum eldhúsvörum sem verslunin hefur upp á að bjóða.
Við skulum bara byrja þessa gjafagleði á þessari ofurfögru Bodum CHAMBORD kaffikönnu. Mín uppáhalds er bronslituð en hana má fá í fleiri litum að smekk hvers og eins. Kaffikannan er klassísk pressukanna sem gefur um 8 góða kaffibolla. Hér mætast bæði gæði og fegurð…er hægt að biðja um eitthvað meira? Það eina sem þú þarft að gera er að skrifa við þessa færslu eða á facebook síðu okkar af hverju ÞÚ ættir að eignast Bodum CHAMBORD kaffikönnu frá Ormsson.
Kanillengjan er svo einföld í gerð og tiltölulega fljótleg og í lokin er súkkulaðiglassúr látið leka yfir hana sem setur að mínu mati punktinn yfir i-ið…..ummmm
Kanillengjan góða
Heimabökuð kanillengja
Gerir 2 kanillengjur eða eina mjög stóra
Deig
1 bréf (12g) þurrger
1,5 dl mjólk
2 egg
75 g sykur
450-500 g hveiti
200 g mjúkt smjör
Kanilkrem
200 g smjör
200 g sykur
4 msk kanill
- Hitið mjólkina þar til hún er fingurvolg og bætið þá gerinu saman við.
- Leyfið að standa í nokkrar mínútur og hrærið síðan eggjum og sykri saman við.
- Hnoðið síðan smjöri og hveiti saman við og látið deigið hefast í 30 mínútur.
- Gerið kanilkremið með því að hræra smjör, sykur og kanil vel saman.
- Skiptið deiginu því næst í 2 kúlur. Rúllið þeim í 2 ferninga ca. 30×40 cm og smyrjið kanilkremið á deigið. Það er gott að hafa ríflegt magn af kanilkremi en ég notaði það samt ekki alveg allt. Klippið síðan í deigið eins og sést á myndunum og lokið síðan til skiptis þar til vínabrauðið er alveg lokað.
- Penslið deigið að lokum með léttþeyttu eggi. Leyfið að hefast í 45 mínútur. Bakið síðan í 200°c heitum ofni í 18-20 mínútur.
Súkkulaðiglassúr
400 g flórsykur
6 msk kakó
2 tsk vanilludropar
70 g smjör, brætt
- Öllu blandað saman og þynnt með vatni eða kaffi. Hellt yfir vínabrauðin, magn að eigin smekk.
- Stráið möndluflögur yfir ef þið eigið slíkt.
Leave a Reply