Huggulegur haustmatur lambaskankar með rótargrænmeti

Home / Huggulegur haustmatur lambaskankar með rótargrænmeti

Leyfið mér að kynna nýja æðið mitt, lambaskanka. Dásamlegur “comfort food” sem smellpassar á dimmum rigningardegi, við kertaljós og rauðvínsglas.

IMG_1873 (1)

Lambaskankar með rótargrænmeti
2 lambaskankar
salt
2 msk ólífuolía
1 laukur, saxaður
3 gulrætur, saxaðar
2 sellerístilkar, saxaðir
4 kartöflur, skornar í fernt
1 hvítlauksrif, pressað
300 ml vatn + 1 lambateningur
1 tsk timíankrydd
½ tsk rósmarínkrydd
1 tsk oreganókrydd
1 lárviðarlauf

  1. Kryddið lambaskankana með salti, setjið ólíu á pönnu og brúnið kjötið á öllum hliðum. Takið af pönnunni og geymið.
  2. Steikið lauk, gulrót og sellerí á pönnu í um 4 mínútur og hrærið reglulega í. Bætið kartöflum saman við og eldið í aðrar 2 mínútur. Bætið því næst hvítlauk, lambaskönkum  og kryddið saman við og látið malla í 2 mínútur.
  3. Bætið kjötkraftinum saman við og látið malla. Setjið í ofnfast mót með loki og látið í 150°c heitan ofn í um 1- 1½ klst, eða þar til kjötið er fulleldað en mjúkt (notið kjöthitamæli til að ofelda það ekki.
  4. Skerið kjötið niður og blandið saman við grænmetið. Berið fram með kartöflumús og góðu salati….ummmmmm!

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.