Heimagerð Dukkah

Home / Heimagerð Dukkah

Dukkah er egypsk kryddblanda sem saman stendur af hnetum, kryddum og fræjum. Algengast er að hún sé borin fram með brauði sem fyrst er dýft í olíu og síðan í kryddblönduna sem festist þá við brauðið. En möguleikarnir eru margir og einnig er hægt er að nota dukkah á kjöt, fisk, grænmeti o.s.frv. Dukkah færir bragðlaukana til fjarlægra staða og þið hefðuð átt að finna ilminn í eldhúsinu þegar ég gerði þessa dásamlegu kryddblöndu. Algjörlega ómótstæðileg!

2013-04-19 17.52.22

Dukkah
1 bolli möndlur
3/4 bolli sesamfræ
2 msk kóríanderfræ
2 msk cuminfræ (ath ekki kúmen)
1/2 msk fennelfræ
1/2 tsk svört piparkorn
smakkað til með salti

Aðferð

  1. Ristið möndlurnar þar til þær eru orðnar brúnleitar.
  2. Ristið sesamfræin þar til þau eru orðin ljósbrún.
  3. Ristið kóríander-, cumin- og fennelfræin, ásamt piparkornunum þar til það ilmar allt af dásamlegri kryddlykt.
  4. Látið öll hráefnin í matvinnsluvél og vinnið blönduna niður í það form sem þið kjósið, fínmalað eða grófmalað. Mér finnst gott að fara milliveginn og hafa nokkur gróf korn inn á milli.
  5. Geymið í loftþéttum umbúðum.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.