Hún Dagný Rut Hjartardóttir er matgæðingur mikill og sérstök áhugamanneskja um heilsusamlegt matarræði. Hún birti á dögunum mynd á instagram síðu sinni af ómótstæðilegri hnetubombu sem hún er svo dásamleg að deila með lesendum GulurRauðurGrænn&salt.
Dagný Rut er gestabloggari GRGS
Ég er 25 ára dama úr Hafnarfirðinum með bilaðan áhuga á heilbrigðum lífstíl, matargerð, ljósmyndum og alltaf að leita mér af nýjum ævintýrum. Ég er alltaf að prufa mig áfram í matargerð, enda matgæðingur mikill… Þar sem ég er “ofnæmisgrís”, reyni ég … eins mikið og ég get að halda mér frá mjólkurvörum og glutein-fæði. Er alltaf að finna “hollari kostinn” – það gengur ljómandi vel, enda eyði ég mesta tímanum í eldhúsinu heima hjá mér. Skiptir öllu máli að vera jákvæður og finna kosti í öllu :)
Annars á huga minn allan krúttlega fjölskyldufyrirtækið okkar Músik & Sport sem er íþróttavöruverslun í Hafnarfirðinum, ekki nema 46 ára ! Þar er ég
verslunarstjóri og sé um samfélagsmiðlana og auglýsingar. Þið finnið mig hér:
Hérna kemur bomban…
Orkubomba in daz making
Súkkulaðið setur punktinn yfir i-ið
Algörlega ómóstæðilegt!
Hnetubomba Dagnýjar
2 dl möndlur
2 dl Cashew hnetur
2,5 dl saxaðar döðlur
2 dl kókosflögur
2 msk Sesamfræ
1 msk Chia fræ
1 msk Kanill.
1msk sugrin gold
- Öllu hrært vel saman
Bæta við :
1,5 dl Olífu olia
1 góð msk af hunangi.
Hræra vel.
- Skellt því næst á bökunarpappír í form & inní ofn í 12 – 15 mín á 180
gráðum.
Útkoman er mjög skemmtileg & ekki skemmir lyktin fyrir sem umvefur eldhúsið. Hægt er að leika sér með þessa uppskrift, nota sem “múslí”, skella í skál eða krukku. Fyrir okkur sælkerana mæli ég með að bræða súkkulaði yfir, kæla og skera í mola :) Geymið í kæli og laumist í þegar nammipúkinn bankar uppá með góðri samvisku. Njótið !
Leave a Reply