Nú er tilvalið að skella sér í berjaleiðangur og nota uppskeruna í þessa dásamlega mjúku jógúrtköku sem þið munið elska. Fyrir þá sem ekki hafa tök á því þá skellið þið ykkur einfaldlega út í búð og græjið berin fersk eða frosin – valið er ykkar. Njótið vel.
Dásamleg jógúrtkaka með berjablöndu
Jógúrtkaka með berjafyllingu
Fyrir 6-8
8 eggjarauður
75 g sykur
125 ml mjólk
400 g vanillujógúrt
150 g frosin berjablanda
- Hrærið eggjarauður og sykur saman þar til blandan er orðin létt og ljós og tiltölulega þykk.
- Hitið mjólkina þar til hún er næstum því farin að sjóða. Hellið mjólkinni smátt og smátt saman og hrærið á meðan.
- Hrærið að lokum jógúrt saman við.
- Hellið blöndunni síðan í ofnfast mót og hellið berjunum yfir allt.
- Setjið mótið í uppháa bökunarplötu og hellið heitu vatni þannig að það nái rúmlega helming að mótinu. Setjið 160°c heitan ofn og bakið í 20-25 mínútur eða þar til skorpan er farin að stökkna en kakan er enn mjúk í miðjunni.
- Berið fram volga með ís eða rjóma.
Leave a Reply