Allt sem er bleikt bleikt finnst mér vera fallegt
Pítur eru einfaldur matur og getur auðveldlega verið holl og góð næring. Þær henta frábærlega í miðri viku þegar maður er oftar en ekki í tímaþröng. Þessi píta er hinsvegar ekki hefðbundin, heldur er hún létt og frískandi og alveg dásamleg á bragðið. Ef þið eigið ekki eitthvað af eftirtöldum hráefnum skulu þið ekki örvænta heldur bara sleppa þeim og prufa eitthvað annað sem þið eigið, það gerist ekkert og hún verður pottþétt áfram frábær. Þið selleríhatarar þarna úti getið því andað léttar.
Kjúklingapíta með rósapipar
2-3 eldaðar kjúklingabringur, skorinn eða rifinn niður
2-3 sellerí, smátt skorin
1 rauð paprika, smátt skorin
1 chillí, fræhreinsuð og smátt skorin
1 lítill rauðlaukur, smátt skorinn
1 agúrka, smátt skorin
1 msk rósapipar, mulinn í morteli eða hvítlauspressu
sjávarsalt og pipar
1 msk estragon
1 búnt steinselja, smátt skorin
safi úr einu lime
1/4 bolli grísk jógúrt
1/8 bolli majones
1/8 bolli ólífuolía
Ristað pítubrauð
Aðferð..verður ekki einfaldara
- Blandið varlega öllu hráefninu, nema pítubrauðinu, saman í skál og smakkið til. Bætið við jógúrti, majonesi og olíu saman við eftir þörfum og smekk.
- Látið í pítubrauðið.
- Staldrið aðeins við og starið á þessa fegurð.
- Njótið
Leave a Reply