Kartöflur sem eru stökkar og bragðgóðar með hvítlauk og parmesanosti. Fullkomið meðlæti með öllum mat…og krakkarnir elska þessar.
Kramdar hvítlauks- og parmesankartöflur
500 g kartöflur
2 hvítlauksrif, pressuð
4 msk smjör, brætt
1 tsk timían
sjávarsalt og pipar
50 g parmesanostur, rifinn
- Sjóðið kartöflur í potti þar til þær eru farnar að mýkjast eða í um 15 mínútur. Takið úr pottinum og kælið örlítið.
- Blandið smjöri, hvítlauk og timían vel saman í skál og veltið kartöflunum upp úr þessari smjörblöndu. Setjið kartöflurnar því næst á bökunarplötu með smjörpappír.
- Þrýstið á hverja kartöflu fyrir sig með t.d. botni á glasi svo þær fletjist út. Kryddið með salti og pipar og stráið parmesan yfir þær.
- Setjið í 200°c heitan ofn í um 20 mínútur eða þar til osturinn er orðinn gylltur.
Leave a Reply