Mér þykir fátt betra en að byrja daginn á góðum smoothie drykk. Það er einfaldur morgunverður, léttur í maga og eitthvað svo þægilegt við það að drekka ávexti og grænmeti. Í þessari uppskrift höfum við þrjú af mínum uppáhalds hráefnum en það eru mangó, kókosmjólk og mynta. Drykkurinn minnir óneitanlega á Mangó Lassa sem er indverskur jógúrtdrykkur sem er dásamlega svalandi og frábær með sterkum mat þar sem jógúrtin dempar sterka bragðið. Það var einmitt í Barcelona, þeirri frábæru borg, sem ég fór á fínan indverskan veitingastað þar sem var einmitt boðið upp á jógúrtdrykk með matnum og það var skemmtileg upplifun að drekka smoothie með flottum mat. Þessi drykkur fer því með hugann í sól, sumar og yndislegan mat…ahhhh sælla minninga.
Mangó og kókosmjólkur smoothie
2 fersk mangó, afhýdd og skorin í teninga
250 g grísk jógúrt
100 ml kókosmjólk
200 ml mjólk að eigin vali
5 lauf fersk mynta (má sleppa)
klaki
- Látið öll hráefnin í blandara og blandið vel saman. Bætið við meiri mjólk ef drykkurinn er of þykkur.
Leave a Reply