Þetta er alveg þrusugóður réttur til að hafa sem meðlæti með uppáhaldsaðalréttinum ykkar. Kjöt eða fiskur – allt prótein kann að meta góðar kartöflur sér til halds og trausts!
Parmesan kartöflur
Fyrir 4
500 g kartöflur
Ólífuolía
50 g brauðmylsna
3 msk parmesanostur, rifinn
½ msk rósmarín, þurrkað
1 tsk hvítlauksduft
salt og pipar
- Skerið kartöflurnar í báta og hellið ríflegu magni af olíu þannig að hún hylji allar kartöflurnar vel.
- Blandið saman parmesan, brauðmylsnu, rósmarín, hvítlaukskryddi, salti og pipar. Hellið því næst ostablöndunni yfir kartöflurnar og blandið vel saman. Látið á ofnplötu með smjörpappír og bakið við 220°c í 30 mínútur eða þar til þær eru orðnar gylltar. Hrærið reglulega í kartöflunum á meðan þær eru að eldast. Saltið.
Leave a Reply