Rababara og jarðaberjakaka
Mylsna yfir köku
120 g smjör
150 g ljós púðusykur
1/4 tsk salt
160 g hveiti
Kakan
300 g rababari, skorinn í litla bita
300 g jarðaber, skorin í sneiðar
2 msk ljós púðusykur
190 g hveiti (ath. hveitið deilist niður)
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
85 g smjör
180 g flórsykur
3 egg
1 tsk vanilludropar
- Gerið mynsluna með því að hræra saman smjöri, púðusykri og salti. Bætið hveiti saman við og blandið saman með gaffli þar til mylsnur hafa myndast. Geymið í kæli.
- Blandið rababara, jarðaberjum, púðusykri, 30 g af hveiti, lyftidufti og salti saman í skál. Takið blönduna til hliðar og geymið.
- Setjið smjör og flórsykur saman í hrærivélaskál og hrærið það til blandan er orðin létt og ljós, bætið þá eggjum saman við, einu í einu. Minnkið kraftinn á hrærivélinni í lægstu stillingu og bætið vanilludropum og afganginum af hveitinu (160 g) saman við.
- Leggið smjörpappír yfir ca. 23×23 cm form. Smyrjið formið og stráið smá hveiti yfir.
- Hellið síðan deiginu í formið, hellið því næst rababara/jarðaberjablönduna yfir og endið síðan á því að strá mylsnunni (sem þið geymduð í kæli) yfir allt.
- Bakið við 170°c í um 50-55 mínútur. Stingið prjóni í hana til að fullvissa ykkur um að hún sé fullbökuð. Kælið lítillega, skerið síðan í bita og berið fram með þeyttum rjóma.
Leave a Reply