Þessa eggaldinmauk geri ég reglulega þegar okkur langar í hollt og gott snarl og bragðast alveg frábærlega með ristaðri tortillu, pítubrauði eða sem álegg á samloku.
Reykt eggaldinmauk með myntu
1/3 bolli möndlur
1 stórt eða 2 lítil eggaldin
2 msk ólífuolía
2-3 msk sítrónusafi
2 hvítlauksrif, pressuð
2 msk fersk mynta, söxuð
2 msk fersk steinselja, söxuð
1 tsk sjávarsalt
Aðferð
- Látið möndlurnar liggja í heitu vatni í smá stund.
- Hitið ofninn á grill. Pikkið víðsvegar um eggaldinið með gaffli. Látið á ofnplötu með álpappír og eldið þar til eggaldinið hefur fallið saman, um 40 mínútur og snúið nokkrum sinnum. Kælið og skerið í tvenn og skafið kjötið innan úr því.
- Þerrið möndlurnar. Látið þær í matvinnsluvél ásamt öllum hráefnunum nema eggaldininu. Blandið vel saman. Bætið nú eggaldinu útí og blandið saman þar til orðið mjúkt.
- Smakkið til og bætið útí salti, sítrónu eða olíu ef þörf er á.
- Látið í skál, hellið smá olíu útí og berið fram með kexi, pítu eða látið á brauð.
Leave a Reply