Ég fer ekki leynt með dálæti mitt á tælenskri matargerð og fæ ekki nóg af því að dásama kryddin, litasamsetninguna og einfaldleikan sem felst í þessari tegund matargerðar. Hér má segja að hollustan sé í fyrirrúmi og það algjörlega áreynslulaust.
Þessi einfaldi réttur með nautakjöti og grænmeti í himneskri chilísósu er kominn á uppáhalds listann minn og verður eldaður aftur og aftur. Ég mæli sérstaklega með steikingarolía frá Himneskri hollustu fyrir þennan rétt en hún er hitaþolin og hentar því vel til steikingar á öllum mat.
Stir fry nautakjöt í chilísósu
300-350 g nautakjöt, skorið í strimla
chilíkrydd (t.d. chilí explosion)
pipar
1 eggjahvíta
1 msk hveiti
1 msk olía
1 rauð paprika, skorin í strimla
4 vorlaukar, skornir langsum
1 brokkólíhaus
handfylli baunaspírur
2 hvítlauksrif, söxuð
2 tsk engifer, smátt saxað
Sósan
3 msk appelsínusafi
1 tsk hvínvínsedik, t.d. frá Blue dragon
2 tsk dökk soyasósa, t.d. dark soy sauce frá Blua dragon
1 tsk chilímauk, t.d. minched chili frá Blue dragon
- Gerið sósuna með því að blanda appelsínusafa, hvítvínsediki, soyasósu og chilímauki saman í skál.
- Þeytið eggjahvítuna með gaffli þar til hún fer að freyða. Bætið þá kjötinu saman við ásamt chilíkryddi, ríflegu magni af pipar og hveiti og þekjið kjötið vel með þessari blöndu.
- Setjið steikingarolíu á pönnu og hitið vel. Léttsteikið kjötið og bætið því næst grænmetinu saman við. Hellið sósunni saman við og leyfið að hitna. Ef þið viljið getið þið bætt við 3-4 msk af vatni til að þynna sósuna. Berið fram strax með hrísgrjónum.
Leave a Reply