Mexíkóskur vekur alltaf lukku og svo ótrúlega gaman að prufa sig áfram með þessa tegund matargerðar. Hér er á ferðinni chimichanga fylltar með nautahakki sem eru steiktar þar til stökkar. Fljótleg og ofurgóð kvöldmáltíð sem slær í gegn hjá öllum fjölskyldumeðlimum.
Hráefnin undirbúin
Chimichangas með nautahakksfyllingu, salsa sósu, sýrðum rjóma og kóríander
Chimichanga með nautahakksfyllingu
500 g nautahakk
1 lítill laukur, saxaður
2 hvítlauksrif, pressuð
1 tsk chilíduft
½ tsk cumin (ath ekki kúmer)
½ tsk oregano
1 lítil dós refried beans
400 g tómatmauk, ég notaði Hunts traditional premium pastasósu
tortillakökur
rifinn ostur
tannstönglar
grænmetisolía til steikingar
Meðlæti
salsasósa
sýrður rjómi
kóríander, saxað
nachos
- Léttsteikið nautahakkið á pönnu og bætið síðan lauknum saman við og steikið áfram. Bætið því næst hvítlauk, chilídufti, cumin og oregano saman við. Blandið saman og eldið í um 30 sek. Bætið því næst baunamaukinu og tómatmaukinu út á pönnuna og látið malla þar til blandan hefur þykknað töluvert.
- Setjið fyllingu á endann og fyrir miðju á tortillakökunni og brjótið hana saman, lokið örugglega með tannstönglum. Ef tortillakökurnar eru ekki mjúkar látið þær þá í örbylgjuofn í 10-15 sek.
- Hellið olíu á pönnu þannig að hún nái vel yfir botninn á pönnunni, hitið olíuna vel og steikið tortillurnar í 2 mínútur á hvorri hlið, fylgist samt vel með hitanum og passið að þær brenni ekki. Takið úr olíunni og leggið á eldhúspappír og þerrið.
- Ég læt síðan ost yfir og set þær í ofn í nokkrar mínútur til að bræða ostinn en það er smekksatriði hvort þið viljið hafa hann bráðinn eða ekki.
- Berið þessar dásamlegu chimichangas fram með sýrðum rjóma, salsasósu (ég nota medium sterka), kóríander, hrísgrjónum og/eða nachosflögum.
Leave a Reply