Suðrænn og sólríkur kjúklingaborgari

Home / Suðrænn og sólríkur kjúklingaborgari

Nú þegar sólin skín og það er virkilega orðið raunhæft að leyfa sér að hlakka til sumarsins er ekki úr vegi að koma með uppskrift að þessum ljúffengu kjúklingaborgurum. Þeir eru súperhollir enda stútfullir af grænmeti og öðru gúmmelaði. Grillaðir í ofni og bornir fram með grænmeti, sýrðum rjóma og jalapenos eru þið komin með hina fullkomnu sumarmáltíð á ótrúlega skömmum tíma.

2013-03-30 19.35.32

Sumarlegra verður það ekki

2013-03-30 18.42.25Litríkt og dásamlegt

2013-03-30 18.53.04-2

Tilbúnir í ofninn

2013-03-30 19.38.35Nú er bara að njóta


Suðrænn og sólríkur kjúklingaborgari

500 gr kjúklingabringur, skinnlausar
1 rauð paprika, skorin í litla teninga
2 vorlaukar,skornir smátt
1 jalapeno, smátt skorið
1 mango, skorið í litla teninga
3 msk kókosmjöl
1/2 bolli steinselja eða basilíka, söxuð
1 egg
hamborgarabrauð
salt og pipar

Aðferð

  1. Látið kjúklingabringurnar í matvinnsluvél, látið vélina á “pulse” þar til kjúklingakjötið er orðið að hakki.
  2. Látið kjúklingakjötið í stóra skál og blandið saman við paprikuna, vorlaukinn, jalapenos, mango, kókosinn, steinseljuna/basil og eggið.
  3. Blandið mjög vel saman og mótið borgarana.
  4. Grillið borgarana í ofni í um 4-5 mínútur á hvorri hlið eða þar til kjötið er fulleldað. Saltið og piprið.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.