Ommnommmnommm……þessi eftirréttur er fyrir alla eftirrétta elskendur þarna úti.
Það tekur enga stund að skella í eina svona dásamlega stökka súkkulaði-karmellusnilld og upplifunin er himnesk. Skelltu tveimur stjörnuljósum í og þú ert komin með áramótaréttinn þetta árið. Það er engin þörf fyrir fleiri orð…þessi selur sig alveg sjálf!
SúkkulaðibitaBomban
1 bolli = 230 ml
230 gr smjör, mjúkt
1 bolli púðusykur
1/2 bolli sykur
2 egg
2 tsk vanilludropar
2 1/4 bolli hveiti
1 tsk sterkt kaffi
1 tsk lyftiduft
1 tsk salt
230 gr. súkkulaðidropar
vanilluís
karmellusósa
súkkulaðisósa
rjómi
kokteil kirsuber
Aðferð
- Hitið ofninn á 180 °c
- Blandið saman smjöri, púðusykri og sykri og hrærið þar til þetta hefur blandast vel saman. Bætið þá eggjum og vanilludropum útí og hrærið saman.
- Blandið saman í aðra skál hveiti, kaffi, lyftidufti og salti. Bætið saman við blautu hráefnin og hrærið varlega saman. Bætið síðan súkkulaðidropunum útí og hrærið varlega.
- Smyrjið 33 x 23 cm form og látið deigið í formið.
- Bakið í um 25-30 mínútur eða þar til kakan er tilbúin. Kælið í forminu
- Skerið kökuna í nokkra teninga. Látið á disk. Látið ísinn yfir kökuna. Sprautið súkkulaði og karmellusósu yfir. Sprautið rjóma og toppið með kirsuberi.
Ertu búin..ertu búin..ertu búin..megum við núna? Og svo var kakan allt í einu búin!
Leave a Reply