Ný vika heilsar og hún byrjar einfaldlega svo miklu betur með sneið að lungamjúkri og volgri súkkulaðiköku. Þessi er reyndar í hollari kantinum með döðlum og möndlum – en bragðið er himneskt. Uppskriftin er að fyrirmynd döðlukökunnar af hinu góða matarbloggi Húsið við sjóinn.
Súkkulaðikaka í hollari kantinum
175 g döðlur
3 msk vatn
140 g möndlur
120 g dökkt súkkulaði
50 g sykur
3 msk hveiti, t.d. spelt
1 tsk vanilludropar
2 egg
1 tsk lyftiduft
- Leggið döðlurnar í bleyti í nokkrar mínútur til að mýkja þær.
- Saxið döðlurnar og látið þær ásamt 3 msk af döðluvatninu saman í skál.
- Saxið möndlur og súkkulaði og bætið saman við döðlurnar.
- Bætið því næst sykri, hveiti, vanilludropum, eggjum og lyftidufti saman við og blandið öllu vel saman.
- Setjið í smurt bökunarform og bakið í 150°c heitum ofni í um 40 mínútur.
Berið fram með ís eða/og rjóma.
Leave a Reply