Innihaldslýsing

1 msk smjör
1/2 laukur, saxaður
3-4 pulsur/pylsur, skornar í bita
1 hvítlauksrif, pressað
1 msk sesamolía, t.d. frá Blue dragon
2 1/2 bolli soðin hrísgrjón
2 egg, léttþeytt
2 msk soyasósa, t.d. frá Blue dragon
1 vorlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
Hvort sem við segjum pulsur eða pylsur þá er þetta uppskrift sem kemur skemmtilega á óvart!

Leiðbeiningar

1.Bræðið smjör á pönnu við meðalhita.
2.Bætið lauk og pulum út á pönnuna og steikið í 4-5 mínútur. Bætið þá hvítlauk saman við og steikið í 1-2 mínútur.
3.Bætið sesamolíu út á pönnuna og steikið í 1 mínútu. Setjið þá hrísgrjónin saman við.
4.Hrærið öllu saman í nokkrar mínútur.
5.Ýtið blöndunni til hliðar á pönnunni og bætið eggjum út á hana og hrærið þau.  Þegar þau eru farin að steikjast blandið þá saman við hrísgrjónablönduna.
6.Setjið soyasósu saman við og hrærið vel og stráið vorvorlauk yfir allt.

Þessi hrísgrjóna-pulsuréttur var gerður þegar lítið var til í ísskápnum og ég varð að vinna með það sem ég hafði. Börnin kveljast þegar lítið er í ísskápnum, þó reyndar þau segi fáránleg oft að það sé ekkert til þegar ísskápurinn er stútfullur af mat. Mér finnst það hinsvegar frábært því þá einmitt nýti ég það sem er til og oft verða til frábærar uppskriftir við svona aðstæður #sorrynotsorry – Þessi uppskrift var einmitt gerð þegar “ekkert” var til í ísskápnum og vakti meira að segja mjög mikla lukku heimilisgesta. Fyrirmyndina fann ég á Delish en ég breytti henni örlítið. Hvort sem við segjum pulsur eða pylsur þá er þetta uppskrift sem kemur skemmtilega á óvart!

Færslan er unnin í samstarfi við Innnes.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.