B.L.T. með twisti

Home / Brauð & samlokur / B.L.T. með twisti

Bíddu B.L.T. má þetta??? Óóóóóó já þetta má ekki aðeins.. þetta Á!
Við þekkjum hana öll og mörg okkar hafa eflaust pantað hana á veitingahúsi á góðum degi. En færri hafa gert B.L.T. heima hjá sér og eftir að þið hafið prufað það er hreinlega ekki aftur snúið. Nafnið B.L.T stendur fyrir bacon, lettuce og tomato, hin fullkomna blanda. Ég bætti reyndar við sneiðum af avacado og finnst það setja punktinn yfir i-ið. Samlokan er einföld, gríðarlega falleg og alveg suddalega góð.

B.L.T með twisti
gróft samlokubrauð, ég sker skorpuna af
majones
dijon sinnep
hvítlauksrif
lambhagasalat
stökkt bacon
góðir tómatar, sneiðar
avacado, sneiðar

Aðferð

  1. Blandið saman í skál majonesi og dijon sinnepi, smakkið til.
  2. Ristið brauðsneiðarnar á pönnu með olíu þar til þær eru orðnar stökkar. Nuddið hvítlauksrifi á aðra hliðina á brauðinu.
  3. Takið brauðsneið, smyrjið með sinnepsblöndunni, látið því næst kál, tómata, bacon, avacado og kál yfir það. Leggið brauðsneið á kálið, endurtakið leikinn og endið á brauðsneið. Skerið í tvennt og stingið pinna í samlokurnar til að halda þeim saman.


Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.