Ég held að ég hafi mögulega verið að borða mína allra bestu og einföldustu máltíð í langan tíma. Kjúklingaréttur sem tók mig innan við 5 mínútur að útbúa og inniheldur aðeins 5 hráefni, að kjúklingnum meðtöldum.
Niðurstaðan er mjúkur, safaríkur og ótrúlega bragðgóður kjúklingur með sætu sinnepsbragði. Hentar vel bæði hversdags sem og um helgar. Frábær máltíð með stóru F-i!
Heimsins besti kjúklingur
4 kjúklingabringur
1/2 bolli (100 ml) dijon sinnep
1/4 bolli hlynsýróp
1 msk rauðvínsedik
salt og pipar
rósmarín, ferskt eða þurrkað
Aðferð
- Stillið ofninn á 220°c.
- Blandið saman sinnepi, sýrópi og ediki, smakkið til, ef ykkur finnst of mikið sinnepsbragð bætið meira af sýrópi saman við.
- Setjið kjúklinginn í ofnfast mót og hellið blöndunni yfir hann.
- Saltið og piprið.
- Látið inní ofninn í 30-40 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður.
- Stráið yfir söxuðu rósmaríni.
- Gott að bera kjúklinginn fram með hrísgrjónum og góðu salati.
Leave a Reply