Það má vel vera að febrúar hafi rétt verið að detta inn en sólin skein i dag, daginn er tekið að lengja og þessi frábæri kjúklingur færir sumarið enn nær með sínu dásamlega og ferska sítrusbragði.
Það tekur ekki langan tíma að útbúa þennan rétt og hann er algjörlega imbaprúff. Það er hinsvegar gott ef kjúklingurinn fær að standa aðeins þannig að hann nái að taka til sín það frábæra bragð sem marineringin hefur upp á að bjóða. Yndislegur kjúklingaréttur í alla staði og mæli óhikað með honum!
Girnilegur kjúklingur í bígerð
Útkoman er æðislegur límónukjúklingur
hér með epla og gulrótarsalati ásamt klettakáli..algjör nammi namm
Límónukjúklingur
500 g kjúklingabringur
1 límóna (lime)
1 msk ólífuolía
1 msk dijonsinnep
1 msk soyasósa
1 msk hunang
3 vorlaukar, saxaðir
1 hvítlauksrif, pressað
salt og pipar
Aðferð
- Blandið saman í skál safanum og finrifnu hýðinu af límónunni, olíunni, sinnepinu, soyasósunni, hunangi, vorlauknum, hvítlauksrifinu ásamt salti og pipar og blandið vel saman.
- Látið kjúklingabringurnar í plastpoka og hellið marineringunni yfir. Lokið pokanum og nuddið marineringunni vel inn í kjúklinginn. Leyfið að marinerast í 1 klukkustund.
- Látið síðan í ofnfast mót og inn í 200°c heitan ofn í um 35 mínútur eða þar til kjúklingurinn hefur eldast í gegn.
- Berið fram með góðu salati og hrísgrjónum, jafnvel tagliatelle.
Leave a Reply