Nýlega kom út matreiðslubók um Lágkolvetna lífsstílinn – LKL eftir Gunnar Má Sigfússon, en Gunnar hefur um langt árabil verið einn vinsælasti líkamsræktarþjálfari og heilsuráðgjafi landsins. Í þessari bók leiðir hann lesendur í allan sannleika um þennan jákvæða lífsstíl og gefur fjölda uppskrifta að girnilegum réttum sem auðvelda fólki leiðina að heilbrigðara lífi.
Ég kolféll fyrir þessu frábæra ferska rækjusalati sem er hreint út sagt það langbesta sem ég hef bragðað og fékk góðfúslegt leyfi Gunnars fyrir því að birta þessa frábæru uppskrift. Hvet ykkur til að prufa, hrein snilld!
Fersk og bragðmikið LKL rækjusalat
250 g rækjur
1/2 agúrka, smátt skorin
2 litlir tómatar, skornir smátt
1 lítill rauðlaukur, smátt skorinn
1/2 rauð paprika, smátt skorin
1/2 steinseljuknippi, saxað
3-4 msk vorlaukur, saxaður
sítrónusafi, að smekk
salt og pipar, að smekk
2 dl majones
Aðferð
- Afþýðið rækjurnar. Gott er að kreista þær laust svo safinn leki aðeins úr þeim.
- Blandið öllum innihaldsefnunum saman í skál. Kreistið safa út sítrónunni yfir og blandaðu majonesinu að lokum saman við. Saltið og piprið.
Leave a Reply