Ofureinfaldur kjúklingaréttur með sveppum og þistilhjörtum

Home / Fljótlegt / Ofureinfaldur kjúklingaréttur með sveppum og þistilhjörtum

3.7. Kjúklingaréttur með þistilhjörtumKjúklingaréttur með þistilhjörtum
Þegar maður kemst á bragðið með að borða þistilhjörtu er erfitt að hætta. Fersk eru þau einhver allra fyrirhafnarmesti matur sem finnst – og í þokkabót grátlega lítið ætt af hverju og einu. En bragðið heldur manni við efnið. Marineruð í olíu í krukku eru þau aðeins auðveldari viðfangs. Og ekkert síðri. Þau eru uppistaðan með kjúklingnum í þessum dúndurgóða suðræna pottrétti sem fær sálartetrið til að mala og lygna aftur augunum.

fyrir 4-6
Eldunartími 50 mínútur

1.5 kg kjúklingabitar að eigin vali
2 laukar, gróflega skornir
500 g. sveppir, skornir í fernt
1-2 krukkur þistilhjörtu, án vökva
2 msk dijon sinnep
4 hvítlauksrif, pressuð
60 ml ólífuolía
60 ml rauðvínsedik
60 ml kjúklingakraftur eða rauðvín
1 tsk basil, þurrkað
1 tsk timían, þurrkað
salt og pipar

  1. Látið kjúklingabitana í ofnfast mót og setjið laukinn, sveppina og þistilhjörtun síðan yfir það.
  2. Blandið afganginum af hráefnunum saman í skál ásamt salti og pipar og hellið yfir allt.
  3. Eldið við 190°C í 40-50 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. Penslið kjúklinginn af og til með marineringunni sem hann liggur í.

Leave your comment to Cancel Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.