Hér er tilbrigði við víðfrægan og óskeikulan barnaafmælisklassíker og sannkölluð lúxusútgáfa. Súkkulaðið er einfalt í gerð en alveg ótrúlega gott og kemur skemmtilega á óvart. Tilvalið sem einfaldur eftirréttur eftir góðan mat – eða bara hvenær sem hugurinn girnist.
Súkkulaði með karamellu Rice Krispies
110 g sykur
2 msk vatn
50 g rice krispies
450 g dökkt gæðasúkkulaði
- Látið sykur og vatn saman í pott, hrærið saman og hitið við meðalhita þar til sykurinn hefur leyst upp. Hættið að hræra í blöndunni um leið og hún byrjar að sjóða. Látið sjóða þar til sykurinn hefur fengið á sig gylltan lit.
- Takið af hitanum og bætið rice krispie út í og blandið vel saman. Látið blönduna á olíusmurðan smjörpappír og dreifið vel úr þannig að blandan verði eins þunn og möguleiki er á. Þegar blanda hefur harðnað brjótið þá karmelluna í bita og látið í plastpoka og rúllið yfir hann með kökukefli þar til karmellan er orðin eins og 1-2 hrísgrjón að stærð.
- Bræðið súkkulaðið í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði. Hellið bræddu súkkulaðinu á smjörpappír og dreifið úr því.
- Stráið rice krispies karmellunni yfir allt súkkulaðið og þrýstið lítillega á það þannig að það fari ofan í súkkulaðið. Geymið í kæli í nokkrar mínútur.
- Brjótið súkkulaðið bita og geymið í lokuðu íláti í kæli.
Leave a Reply