Panna cotta með hvítu súkkulaði

Home / Eftirréttir & ís / Panna cotta með hvítu súkkulaði

Panna cotta er réttur sem slær alltaf í gegn. Hann er hinsvegar einnig réttur sem fáir hafa eldað og þar held ég að matarlímsblöðin komi við sögu. Það er eitthvað við matarlímsblöð sem fælir fólk frá og líklegast er það sú hugmynd fólks að þá hljóti rétturinn að vera flókinn. En því er sko öðru nær og þennan rétt hefur 7 ára sonur minn gert án nokkurra vandkvæða. Þennan eftirrétt gerði ég fyrir tímaritið Sumarhúsið og garðurinn sem var að koma út fyrir stuttu. Ég hvet ykkur til að prufa – sparilegur og ofureinfaldur eftirréttur sem hægt er að gera með góðum fyrirvara og vekur ávallt jafn mikla lukku.

IMG_5736

Panna cotta með hvítu súkkulaði
500 ml rjómi
150 ml mjólk
100 g hvítt súkkulaðið, brytjað niður
25 g sykur
4 matarlímsblöð, látin liggja í volgu vatni í 5 mín og vatnið síðan kreyst frá
1 poki af blönduðum berjum, frosin
2-3 msk agave sýróp

  1. Hitið rjóma og mjólk í potti við meðalhita þar til blandan fer næstum því að malla. Lækkið þá hitann og hrærið súkkulaðinu og sykrinum saman við og hrærið þar til það er leyst upp og blandast saman við rjómann
  2. Takið af hitanum og setjið matarlímsblöðin saman við. Hærið þar til þau eru uppleyst. Geymið nú þar til blandan hefur kólnað. Setjið þá í form og í frysti. Gott er að nota sílíkonform eða láta plastfilmu í önnur form þannig að það náist almenninlega úr. Geymi í frysti í amk. 2 tíma.
  3. Hitið berin í potti og setjið agave sýróp saman við. Hitið þar til berin eru farin að maukast. Takið panna cotta úr formunum og látið á disk og berið fram með berjasósunni.

Leave your comment to Cancel Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.