Veislubomba Önnu Rutar

Home / Kökur & smákökur / Veislubomba Önnu Rutar

Þessa köku bar ég fram í veislu fyrir nokkur og hún kláraðist á mettíma og margir sleiktu diskana sína i von um að sælan myndi vara örlítið lengur. Veislubomban er fögur og hentar vel á veisluborðið en að auki er hún syndsamlega góð og örlítið jólaleg. Njótið vel  kæru vinir.

Kveðja
Anna Rut!

veislubomba

 

Veislubomba Önnu Rutar
1 ¾ bolli hveiti
2 bollar sykur
¾ bolli kakó
2 tsk matarsódi
1 tsk salt
1 bolli súrmjólk/ab mjólk
½ bolli matarolía
3 egg
1 tsk vanilludropar
1 bolli heitt kaffi

Ofan á
11 -12 dl rjómi
2 pokar af kúlum
1 pakki af kókosbollum
1 poki frosin hindber, afþýdd
16 stk Oreo kex, grófsaxað
Ber til að skreyta (má sleppa)

  1. Hitið ofninn í 180°C
  2. Sigtið öll þurrefnin (hveiti, sykur, kakó, matarsóda og salt) í skál og hrærið þeim saman.
  3. Setjið eggin, súrmjólkina, matarolíuna og vanilludropana í aðra skál og hrærið vel.
  4. Hellið síðan blöndunni saman við þurrefnin smátt og smátt og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  5. Hrærið að lokum heitu kaffinu saman við.
  6. Hellið deiginu í tvö vel smurð hringform (gott að klippa til smjörpappír og setja í botninn til að kakan festist örugglega ekki við).
  7. Bakið í 35 – 40 mínútur.
  8. Takið botnana úr ofninum og kælið vel.

Kakan sett

  1. Kljúfið hvorn botn fyrir sig í tvennt.
  2. Búið til karamellukremið með því að setja 2 dl af rjómanum í pott ásamt kúlunum og sjóðið saman á vægum hita þar til allar kúlurnar eru bráðnaðar.
  3. Þeytið rjómann og skiptið honum í þrennt.
  4. Setjið fyrsta botninn á kökudisk og smyrjið hann með smá karamellukremi. Raðið kókosbollunum ofan á kremið og 1/3 af þeytta rjómanum .
  5. Setjið næta botn ofan á, smyrjið hann með smá karamellukremi Saxið Oreokexið, hrærið því saman við 1/3 af rjómanum og setjið ofan á botninn.
  6. Því næst setjið þið þriðja botninn ofan á, raðið á hann hindberjunum og smyrjið restinni af rjómanum yfir.
  7. Að lokum setjið þið seinasta botninn á, hellið karamellusósunni yfir og skreytið að vild.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.