Glútenlausa brauðið

Home / Brauð & samlokur / Glútenlausa brauðið

Þrátt fyrir að hafa bakað ótal uppskriftir af glútenlausu brauði eru ekki margar þeirra sem ég hef verið ánægð með. Þetta brauð aftur á móti er æðislegt. Það er alls ekki þurrt eins og oft vill verða með glútenlaus brauð heldur er það dúnmjúkt og bragðgott. Það tekur enga stund að skella í það og innihaldsefnin eru öll meinholl. Þið sem eruð í leit ykkar af fullkomna glútenlausa brauðinu einfaldlega verðið að prófa þetta.

brauð

Besta glútenlausa brauðið
1 bolli möndlumjöl, t.d. frá Now
2 msk chia fræ (lögð í bleyti)
2 msk vatn ( til að leggja chia fræin í)
¾ bolli örvarrótarmjöl (arrowroot) – fæst ódýrt í asískum búðum, ég kaupi þetta í þessari sem er á móti Hlemm.  Líka möguleiki að nota tapioca mjöl í staðin.
1 tsk matarsódi
2 msk eplaedik
3 egg
smá salt

  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Leggið chia fræin í bleyti í vatnið í lítilli skál, hrærið aðeins í til þess að fræin blotni örugglega öll.
  3. Sigtið örvarrótarmjölið og matarsódann í skál
  4. Blandið möndlumjölinu út í skálina og hrærið þurrefnunum vel saman með písk
  5. Setjið eggin, útbleyttu chia fræin og eplaedikið í skálina og hrærið öllu vel saman þar til deigið er kekkjalaust.
  6. Setjið smjörpappír í frekar lítið form að eigin vali og hellið blöndunni í formið.
  7. Bakið í 25 mínútur eða þangað til brauðið er bakað og það lyftir sér aftur upp þegar þrýst er á það með fingri
  8. Takið brauðið úr ofninum og kælið

 

Þetta er uppskrift að einu litlu brauði því ég kýs frekar að baka oftar og gera minni uppskrift í einu. Ef þið viljið baka stærra brauð sem passar í stórt brauðform þá þurfið þið að tvöfalda uppskriftina og baka brauðið í sirka 35 mínútur.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.