Kjúklingarréttur fyrir íþróttaálfa

Home / Kjúklingur / Kjúklingarréttur fyrir íþróttaálfa

Þessi uppskrift er bæði fljótleg og góð. Hún er meinholl enda er sósan að mestu gerð úr grænmeti, það vel földu að litlu grísirnir átta sig ekki á hollustunni og gæða sér á matnum af bestu lyst.  Réttur sem hentar sérstaklega vel í miðri viku.

IMG_8063

IMG_8067

Kjúklingarréttur fyrir íþróttaálfa
4 kjúklingabringur, t.d. frá Rose poultry
3 msk hunang
3 msk sojasósa, t.d. Blue dragon Japanese Soy Sauce
1 blaðlaukur, smátt skorinn
6 gulrætur, smátt skornar
2-3 sellerístilkar, skornir smátt
1-2 pokar veislusalat eða klettasalat
ristaðar hnetur, t.d. heslihnetur, kasjúhnetur eða furuhnetur.

  1. Setjið grænmetið niðurskorið í skál mýkjið örlítið með því að gufusjóða það í 8-10 mín.
  2. Setjið grænmetið ásamt sojasósu og hunangi í matvinnsluvél og maukið þar til þetta er orðið að sósu. Setjið það saman við kjúklingabitana og leyfið að marinerast eins og tími gefst til frá nokkrum mínútum upp í sólahring.
  3. Steikið á pönnu í um 10 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður. Saltið og piprið að eigin smekk.
  4. Setjið salat í skál og hellið blöndunni yfir.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.