Einföld karamellu kókossósa

Home / Eftirréttir & ís / Einföld karamellu kókossósa

Nú má ég til með að deila með ykkur uppskrift af dásamlegri karamellusósu með kókosbragði sem er bæði einföld og fljótleg í gerð. Sósan er fullkomin út á ísinn, til að dýfa eplum í eða jafnvel bara ein og sér. Sósan geymist í kæli í lofttæmdum umbúðum í alla að 7 daga og má hita upp í örbylgjuofni eða potti. Hér setur kókosmjólkin punktinn yfir i-ið í þessari heimagerðu karamellusósu sem þið verðið að prufa.

IMG_9890

 

Karamellu kókossósa
170 g smjör
300 g púðusykur
2 msk vatn
¼ tsk salt
120 ml Blue dragon kókosmjólk
½ tsk kókosþykkni
1 tsk vanilludropar

  1. Setjið smjör, sykur, vatn og salt í pott og hitið við meðal hita og hrærið í þar til smjörið hefur bráðnað.
  2. Leyfið að sjóða í 5 mínútur og hrærið einstaka sinnum í blöndunni.
  3. Takið af hitanum og hrærið kókosmjólkinni ásamt vanilludropum og kókosþykkni saman við. Leyfið standa í um 10 mínútur eða þar til hún hefur þykknað. Smakkið til og bætið kókosþykkni við ef ykkur finnst það þurfa.

Leave your comment to Cancel Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.