Mér féllust gjörsamlega hendur þegar ég gerði þennan fiskrétt í fyrsta sinn. Börnin sem nokkrum mínútum áður höfðu horft á mig illum augum þegar þau fréttu að það væri fiskur í matinn spurðu hvort ég gæti ekki gert meira eftir að þau höfðu sleikt diskana sína.
Bleikja í mangóchutney með söxuðum hvítlauk er himneskur réttur sem þið ættuð að gera sem allra fyrst. Hann er eins einfaldur og þeir gerast og hann munu allir elska. PROMISE!
Þessi dásemd slær allt út í einfaldleika sínum
Bleikja í mangóchutneysósu
Fyrir 4
700 -800 g bleikja
1 krukka (250 ml) mango chutney, t.d. Patak’s Sweet Mango chutney
6 hvítlauksrif, söxuð smátt
2 cm engifer, saxað smátt
2 msk soyasósa, t.d. Blue dragon dark soy sauce
svartur pipar
- Blandið mangó chutney, engifer, hvítlauk og soyasósu saman í skál og piprið að eigin smekk.
- Skerið bleikjuna minni stykki og þekjið með chutney blöndunni og látið marinerast í ísskáp eins lengi og tími gefst til.
- Setjið í fiskigrind og grillið eða látið í ofnfast mót og eldið við 160°c í um 10 mínútur eða þar til bleikja en fullelduð.
- Berið fram með sætum kartöflum og grísku salati með blómkáls kúskús.
Leave a Reply