Einföld og ómótstæðileg eplakökuvefja

Home / Eftirréttir & ís / Einföld og ómótstæðileg eplakökuvefja

Ég er svo spennt að kynna ykkur fyrir þessum dásamlega eftirrétti. Ég fjallaði um hann á Instastory í gær og viðbrögðin létu ekki á sér standa – lesendur voru jafn spenntir og ég.

Þeir sem horfðu á matreiðsluþáttinn Ilmurinn úr eldhúsinu sem voru sýndir á sjónvarpi Símans fyrir jól muna eflaust eftir humarvefjunum sem ég gerði í þeim þætti og slógu algerlega í gegn enda snilldar uppskrift þar á ferðinni. Hér erum við með svipaða hugmynd nema nú í formi eplaköku. Jebbs – og ekki bara eplaköku heldur ótrúlega góðri eplaköku. Prufið og munið að láta vita hvernig ykkur líkaði.

Yndisleg eplavefja með kanilsykri!

 

Eplakökuvefja
6 sneiðar samlokubrauð
1 bolli sykur + 3 msk kanill
100 g smjör, brætt
2 epli, skorin í litla bita
súkkulaðirúsínur (má sleppa)

  1. Skerið skorpuna frá og fletjið brauðið út með kökukefli. Dýfið brauðsneiðunum í smjörið báðu megin.
  2. Raðið eplabitum á miðju brauðsins og stráið kanilsykri yfir eplin. Ef þið viljið hafa þetta extra gúrm raðið nokkrum súkkulaðirúsínum yfir eplin. Rúllið brauðinu upp og raðið á ofngrind.
  3. Setjið inn í 175°c heitan ofn í 15 mínútur eða þar til skorpan er gullin og eplin farin að mýkjast.
  4. Takið úr ofni og raðið á disk. Berið fram með ís og/eða rjóma og stráið kanilsykri yfir vefjurnar.

 

Ekki missa af neinu! Fylgið GRGS á InstagramFacebook.

 

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.