Þetta er svona “guilty pleasure” réttur sem smellpassar með góðu rauðvínsglasi. Bráðinn mozzarella, sólþurrkaðir tómatar, valhnetur og það sem setur punktin yfir i-ið góð salami. Prufið þennan!
Algjört gúrm!
Mozzarella kjúklingur með sólþurrkuðum tómötum, salami og valhnetum
Fyrir 4
4 kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry
hunangs grillolía, t.d. frá Caj P.
hvítlauksduftsalt og pipar
2 kúlur mozzarellaostur
70 g salami
hakkaðir sólþurrkaðir tómatar, t.d. frá Paradiso
1 dl valhnetur
Kryddsósa
2 dl sýrður rjómi
1 hvítlauksrif, pressað
fersk steinselja, söxuð
salt og pipar
- Penslið ofnfast mót með olíu.
- Skerið um þrjá cm skurði í kjúklingabringurnar og setjið í mótið. Penslið kjúklingabringurnar með hunangsgrillolíunni og kryddið með hvítlaukskryddi salti og pipar. Setjið í 225°c heitan ofn í 10 mínútur. Takið út ofni.
- Skerið mozzarellaostinn og salami í sneiðar og setjið í skurðina á kjúklinginum. Stráið hökkuðum sólþurrkaða tómata og saxaðar valhnetur yfir kjúklinginn. Setjið aftur inn í ofn í 25 mínútur.
- Gerið kryddsósuna með því að blanda öllu saman og hræra. Gott að láta hana standa aðeins áður en hún er borin fram.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes
Leave a Reply